02.07.2010
Fluttir!
Nú erum við fluttir með allt okkar hafurtask að Smiðjuvegi 11, Kópavogi. Til að byrja með verða skrifstofur í bráðabirgðahúsnæði, sem er þó hið fínasta.
Öll aðstaða til sýninga og reynsluaksturs er allt önnur og mun betri á nýja svæðinu. Auk þess er starfsemin mun meira áberandi og vekur mikla athygli vegfarenda.
13.06.2010
Flutningar í vændum
Orkuver ehf. hefur fest kaup á húsnæði við Smiðjuveg 11 í Kópavogi, þar sem Timbur og Stál var áður til húsa. Þessa dagana erum við að flytja lager og verkstæði þangað. Í byrjun júlí verður öll okkar starfsemi flutt. Að vísu í bráðabirgðaskrifstofur til að byrja með, því til standa miklar breytingar og endurnýjun á húsnæðinu. Við áætlum að því verði lokið snemma í haust.
Nýja húsnæðið er stórt og rúmgott, og verður mikill munur fyrir viðskiptavini að geta skoðað allar okkar vörur á einum stað, við bestu aðstæður. Þessi stækkun gefur okkur einnig möguleika á að auka við vöruúrval okkar eftir því sem ástandið í þjóðfélaginu batnar.
Nýja húsnæðið er stórt og rúmgott
23.04.2010
Mýraeldum 2010 lokið
Laugardaginn 17. apríl síðastl. var haldið uppá Mýraelda sem svo eru kallaðir. Var þetta í annað sinn sem það er gert og er stefnt að því að þetta verði gert annað hvert ár. Þarna gerðu menn sér glaðan dag með mottóið "maður er manns gaman" að leiðarljósi. Auk fjölbreyttra skemmtiatriða, var keppt í ýmsum þrautum á vélum sem sumir vilja kalla liðléttinga en við Orkuversmenn köllum okkar vélar "fjölnotavélar". Því miður, (að kröfu okkar keppanda) hvílir mikil leynd yfir úrslitum keppninnar. Að keppni lokinni fengu gestir að spreyta sig við sömu þrautir og reyndur margir og höfðu gaman af. Við vorum að sjálfsögðu vel nestaðir bæði af tækjum, tólum og efnum til inntöku. Skemmtum okkur hið besta við að ræða við gesti og kynna okkur og okkar vörur. Gátum ekki merkt annað en að okkur væri vel tekið og þökkum fyrir það.
Við viljum endilega fá að vita af svona uppákomum til að geta komið á staðinn með okkar hafurtask og biðjum við þá sem standa fyrir slíkum samkomum að láta okkur vita í tíma.
15.04.2010
Mýraeldar 2010
Orkuver ehf. hvetur alla til þess að koma og gleðjast með okkur og þiggja léttar veitingar
"Nú í vor eru 4 ár frá Mýraeldunum sem sumir vilja meina að hafi komið Mýrunum á kortið. Fyrir 2 árum var haldin Mýraeldahátíð sem heppnaðist mjög vel og um 800 manns mætti á svæðið. Búnaðarfélag Mýramanna hefur ákveðið að halda slíka hátíð annað hvert ár og nú í ár verður Mýraeldahátíðin haldin þann 17. apríl."
Hátíðin fer fram í og við félagsheimilið Lyngbrekku.
14.04.2010
Plastið er komið í hús
Orkuver ehf. hefur í vaxandi mæli flutt inn ýmsar gerðir af plasti fyrir garðyrkjubændur, kartöflubændur og aðra þá sem gera kröfur um sterkt og endingargott plast.
Við erum einnig með mjög góðan 19 gr/m2 akryldúk frá Lutrasil í 10,50m og 12,75m breiddum.

19.03.2010
"Eftir stutt kynni mín af þessari vél á ég bara eitt orð yfir hana: snilld"
Hjörtur L. Jónsson hjá Bændablaðinu prófaði nýverið MultiOne SL835 vél frá Orkuver ehf. Það hafði snjóað hressilega í höfuðborginni og því þótti tilvalið að prófa vélina með snjóblásara að framan og sand-saltdreifara að aftan.
Það er óhætt að segja að umfjöllun Hjartar hafi verið jákvæð og það er greinilegt að honum líkaði vel við tækið. Hjörtur segir meðal annars í niðurstöðum sínum: "Vélin er lipur og þarf ekki mikið pláss til að snúa við. Auðvelt að stjórna og stjórntæki á þægilegum stöðum. Ég mæli með þessari vél fyrir t.d. búnaðarfélög, sveitarfélög og smærri verktaka, sérstaklega vegna aukahluta sem hægt er að fá leigða hjá umboðinu Orkuver"
01.03.2010
MultiOne í snjómokstri
MultiOne SL 835 DT
Fjölhæfni MultiOne vélanna er mikil eins og má sjá á meðfylgjandi myndbandi.
Bæði eru þær duglegar að ryðja snjónum með skekkjanlegri tönn, moka honum með snjóskóflu eða snjóblásara. Þessar vélar eru með lokuðu upphituðu ökumannshúsi og þægilegri vinnuaðstöðu sem gerir þessar vélar áhugaverðar til snjómoksturs á gangstéttum og heimreiðum.
Einnig er fáanlegur sand / saltdreifari sem settur er á þrítengibeisli til að auka enn á fjölhæfnina.
29.01.2010
Sand og saltdreifarar væntanlegir!
Ný tegund af sand og saltdreifurum er væntanleg. Þessa dreifara má t.d. festa á pallbíla en einnig er hægt að fá kerru undir sumar af tegundunum. Tankarnir eru úr polyethylene plasti og eru því mjög sterkir og léttir. Öflug stálgrind er svo í kringum geyminn.
Vinnslubreidd: 1.5 til 12 metrar

05.01.2010
Ný sending af MultiOne vörum
Nú er komin ný sending af MultiOne vélum og fylgihlutum
Mikið úrval af vetrar-fylgihlutum svo sem snjóblásurum, sand/saltdreifurum, snjótönnum og snjókeðjum o.fl.
16.12.09
Ný heimasíða
Orkuver hefur opnað nýja og stórglæsilega heimasíðu. Við vonumst til þess að nýja síðan bæti enn frekar samskipti okkar við viðskiptavini.
15.12.09
Nýjar vörur frá CSF MultiOne

Úrvalið á MultiOne vörum heldur áfram að aukast. Í upphafi árs 2010 mun MultiOne kynna fjöldan allan af nýjungum fyrir MultiOne vélarnar auk þess munu bætast við tvær nýjar vélar í SL800 línuna. Meðal nýju fylgihlutana má nefna snjótönn, nýjar skóflur, lítið bakkó, háþrýstidælu, ripper og fleira.
19.11.09
FoldTrailer kerrurnar komnar í hús!
FoldTrailer kerrurnar eru komnar í hús. Sýningareintaki hefur verið stillt upp í húskynum Orkuvers að Trönuhrauni 7b







